Fara í efni

Ólöglegt varnarefni í núðlum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á  tveimur framleiðslulotum af Jin Ramen spicy núðlum sem fyrirtækið Lagsmaður ehf. flytur inn. Varnarefnið etýlen oxíð fannst í vörunni en það er óheimilt að nota það í matvælaframleiðslu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar, Garðarbæjar og Kópavogs.

Tilkynning um vöruna barst til Matvælastofnunar í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður

Innköllun á einungis við eftirfarnar framleiðslulotur:

  • Vörumerki: Ottogi
  • Vöruheiti: Jin Ramen Spicy noodles 120g
  • Innflytjandi: Lagsmaður ehf. / Fiska.is
  • Best fyrir: 7.07.2022 og 10.08.2022
  • Framleiðsluland: Kórea
  • Geymsluskilyrði: Á þurrum stað
  • Dreifing: Verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur

  • núðlur

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til verslun fiska.is á Nýbýlavegi.

Ítarefni

 


Getum við bætt efni síðunnar?