Fara í efni

Ólöglegt varnarefni í 5-kornablöndu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur framleiðslulotum af 5-kornablöndu frá Svansö sem Kaupfélag Skagfirðinga flytur inn.  Varnarefnið etýlen oxíð greindist í vörunni sem er ekki leyfilegt til notkunar í matvæli. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.

Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF evrópska viðvörunarkerfið um hættuleg matvæli og fóður og gerði heilbrigðiseftirlitinu viðvart.

Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi lotur:

  • Vöruheiti: Svansö 5 blanding, 350 g
  • Strikamerki: 5760932013107
  • Innflytjandi: Kaupfélag Skagfirðinga
  • Best fyrir dagsetningar: 06.01.2022 og 14.03.2022
  • Dreifing: Kaupfélag Skagfirðinga

5-kornablanda

Þeir sem hafa keypt vöruna geta skilað henni í verslunina eða haft samband við KS í síma 455-4530 eða sent tölvupóst til arni.kristinsson@ks.is.

Ítarefni

Uppfært 10.12.20 kl. 12:23


Getum við bætt efni síðunnar?