Fara í efni

Ólöglegt litarefni í kökuskreytingarefni

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hefur tekið úr sölu eftirfarandi matvæli:

Vöruheiti:  
1. Wilton FoodWriter Edible Color Markers Neon Colors, strikanúmer 07089606116.  
2. Wilton 8 Icing Colors Concentrated Gel.

  Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili:  Vörurnar eru framleiddar fyrir Wilton Industries, Inc., í Bandaríkjunum og eru fluttar inn til Íslands og dreift af Byko ehf., Reykjavík.
Auðkenni/skýringartexti:  Vörurnar innihalda litarefnið E 127 sem óheimilt er að nota í þær, skv. gildandi aukefnalista reglugerðar nr. 500/2005 um breytingu á reglugerð nr. 285/2002 um aukefni í matvælum, með síðari breytingum.

Laga- /reglugerðarákvæði:  5. gr. reglugerðar nr. 285/2002 um aukefni í matvælum, með síðari breytingum.  30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
Áætluð dreifing innanlands:  Verslanir Byko.

Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?