Fara í efni

Óeðlilegur fjöldi dauðra dúfa í Vestmannaeyjum

Matvælastofnun hefur borist tilkynning um óeðlilegan fjölda dauðra dúfa í Vestmannaeyjum. Ástæður fyrir dauða fuglanna er í rannsókn. Meðan niðurstöður liggja ekki fyrir um orsakir er almenningi ráðið frá að handfjatla mögulega veika eða dauða fugla án viðeigandi smitvarna eða nálgast fugla sem virðast óeðlilega gæfir. Tilkynna ber um villt dýr í neyð til viðkomandi sveitarfélags.


Getum við bætt efni síðunnar?