Fara í efni

Nýtt rekstrarleyfi Veiðifélags Landmannaafréttar til fiskeldis að Götu á Hellu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Veiðifélagi Landmannaafréttar rekstrarleyfi til fiskeldis að Götu á Hellu. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 30. mars 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 30. apríl 2021.

Veiðifélag Landmannaafréttar sótti um nýtt rekstrarleyfi vegna 50 kílóa hámarkslífmassa á klak- og seiðaeldi á urriða að Götu á Hellu. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin 8. maí 2019. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Veiðifélags Landmannaafréttar FE-1177 að Götu á Hellu en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfis til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?