Fara í efni

Nýtt rekstrarleyfi Veiðifélags Eystri-Rangár til fiskeldis að Eyjarlandi, Bláskógabyggð

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Veiðifélagi Eystri- Rangár rekstrarleyfi til fiskeldis að Eyjarlandi, Bláskógabyggð. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 21. maí 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 18. júní 2021.

Veiðifélag Eystri-Rangár sótti um nýtt á rekstrarleyfi vegna 20 tonna hámarkslífmassa á seiðaeldi á laxi, urriða og bleikju til stangveiða að Eyjarlandi, Bláskógabyggð. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin 2. Apríl 2020. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Veiðifélags Eystri-Rangár FE-1166 að Eyjarlandi, Bláskógabyggð en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfis til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

 

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?