Fara í efni

Nýtt rekstrarleyfi til Laxa Fiskeldis á Bakka í Ölfusi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Löxum Fiskeldi ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis á Bakka í Ölfusi í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 26. október 2020 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 23. nóvember 2020.

Laxar Fiskeldi sótti um nýtt rekstrarleyfi fyrir 100 tonna lífmassa klakfisks- og seiðaeldi á laxi og bleikju á Bakka í Ölfusi. Fyrirtækið var áður með rekstrarleyfi fyrir 20 tonna klakfisks- og seiðaeldis á laxi og bleikju. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin 15. febrúar 2019. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Laxa Fiskeldis ehf. FE-1157 á Bakka í Ölfusi, en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins er ekki matsskyld skv. ákvörðun Skipulagsstofnunar í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?