Fara í efni

Nýtt rekstrarleyfi Sæbýlis til fiskeldis á Eyrarbakka

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Sæbýli ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis að Búðarstíg 23 á Eyrarbakka. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 22. febrúar 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 22. mars 2021.

Sæbýli ehf. sótti um nýtt á rekstrarleyfi vegna 70 tonna hámarkslífmassa á klak- og matfiskeldi á sæeyrum að Búðarstíg 23 á Eyrarbakka. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin 13. september 2017. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Sæbýlis ehf. FE-1163 að Búðarstíg 23 á Eyrarbakka en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfis til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?