Fara í efni

Nýtt rekstrarleyfi Benchmark Genetics Iceland til fiskeldis að Seljavogi við Hafnir

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Benchmark Genetics Iceland hf. rekstrarleyfi til fiskeldis að Seljavogi við Hafnir. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 18. febrúar 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 15. júní 2021.

Benchmark Genetics Iceland hf. sótti um nýtt á rekstrarleyfi vegna 2.8 tonna hámarkslífmassa í seiðaeldi á laxi og hrognkelsum að Seljavogi við Hafnir. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin 18. mars 2020. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Benchmark Genetics Iceland hf. FE-1173 að Seljavogi við Hafnir en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfis til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

 

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?