Fara í efni

Nýr samningur um sölu villtra afurða úr sjó til Kína

Samningur hefur verið undirritað á milli íslenskra og kínverskra yfirvalda um sölu villtra afurða úr sjó til Kína.

Samningurinn hefur verið nokkur ár í vinnslu og vonir standa til um jákvæð áhrif á útflutning sjávarafurða til Kína. Undirritun fór fram í tengslum við heimsókn Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, til Kína í október síðast liðinn. Þórir Ibsen, sendiherra Íslands í Kína undirritaði samkomulagið fyrir hönd Íslands.

Í samningnum er vísað til villtra afurða sem eru veiddar, uppskornar eða þeim safnað á íslensku hafsvæði. Um er að ræða afurðir úr jurta- og dýraríkinu sem teljast hæfar til manneldis. Undanskilin eru spendýr og þær tegundir sem falla undir „Convention on the International Trade in Endangered Species of Wild Fauna and Flora“ eða eru á lista „National Key Protected Wild Animals í Kína“. Lifandi dýr og kímefni eru einnig undanskilin í samningi þessum.

Helstu breytingar eru þær að nú er útflutningur sjávarafurða ekki einskorðaður við takmarkaðan afurðalista, listinn er enn til staðar en þar er búið að bæta inn „Wild aquatic products“

Kínversk yfirvöld hafa innleitt samninginn og er hann orðinn virkur. Matvælastofnun mun eftir sem áður annast útgáfu vottorða af hálfu Íslands.

Nánari upplýsingar um skráningu íslenskra framleiðenda vegna útflutnings matvæla


Getum við bætt efni síðunnar?