Fara í efni

Nýir búvörusamningar taka gildi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Um áramót taka gildi nýir búvörusamningar. Matvælastofnun er falin framkvæmd á stuðningsgreiðslum til bænda. Nýjar reglugerðir í tengslum við samningana taka gildi frá og með næstu áramótum þegar búvörulög taka gildi.
 
Stjórnartíðindi hafa birt eftirfarandi reglugerðir nr. 1151/2016 um stuðning við sauðfjárrækt og reglugerð nr. 1150/2016 um stuðning við nautgriparækt. Þessar reglugerðir eru komnar inn á vef Matvælastofnunar.
 
Á næstunni birtast reglugerðir um stuðning við garðyrkju, stuðning við almennan stuðning við landbúnað og breytingarrreglugerð um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu. Í reglugerðinni um almennan stuðning við landbúnað koma m.a. fram ákvæði um nýliðunarstuðning, jarðræktarstyrki, landgreiðslur og stuðning við aðlögun að lífrænum landbúnaði.
 

Starfsfólk Búnaðarstofu Matvælastofnunar hefur unnið að innleiðingu á nýju búvörusamningunum á síðustu mánuðum til að tryggja hnökralausa framkvæmd þeirra á nýju ári. Þann 2. janúar 2017 koma til fyrstu stuðningsgreiðslurnar, (beingreiðslur í mjólk og gripagreiðslur til kúabænda) í samræmi við nýju samningana.

 
Skilyrði fyrir greiðslum eru m.a. skil á haustskýrslu (forðagæslu) og þátttaka í afurðaskýrsluhaldi, þ.m.t. kúabænda í kjötframleiðslu. Í HUPPU, skýrsluhaldskerfi BÍ í nautgriparækt, hefur verið útbúin sérstök mánðarleg skýrsluskil fyrir kjötframleiðendur sem eru ekki í mjólkurframleiðslu og ekki þiggjendur beingreiðslna í mjólk. Þeir bændur sem eru ekki nú þegar þátttakendur í afurðaskýrsluhaldi (í mjólk og kjötframleiðslu) þurfa að ganga frá sérstöku eyðublaði á þjónustugátt Matvælastofnunar (www.mast.is) eigi síðar en 28. desember nk. Matvælastofnun tekur gildar tilkynningar sem hafa borist til RML innan þessara tímamarka og RML áframsendir til stofnunarinnar.
 
Rétt er að vekja athygli á því að bændur sem hafa verið þátttakendur í afurðaskýrsluhaldi í mjólk með fullnægjandi skilum, hafa skilað haustskýrslu á réttum tíma og hafa fylgt reglum um einstaklingsmerkingar skv. reglugerð um merkingar búfjár nr. 916/2012 ættu ekki að finna fyrir auknum kröfum með nýjum búvörusamningum.
 

Ítarefni

 





Getum við bætt efni síðunnar?