Fara í efni

Ný Fésbókarsíða: Dýravakt MAST

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur tekið í notkun nýja Fésbókarsíðu undir yfirskriftinni Dýravakt Matvælastofnunar. Tilgangur síðunnar er að skapa gagnvirkan vettvang til að miðla upplýsingum um heilbrigði og velferð dýra milli Matvælastofnunar, dýraeigenda og almennings, annars vegar með upplýsingagjöf frá stofnuninni til dýraeigenda um dýravelferðarmál og hins vegar með upplýsingagjöf frá almenningi til Matvælastofnunar þegar grunur leikur á illri meðferð á dýrum.

Á Fésbókarsíðunni verða meðal annars birtar upplýsingar til dýraeigenda um hvernig auka megi velferð og heilbrigði dýra, hvaða reglur gilda um dýrahald og hvernig brugðist er við þegar þeim er ekki fylgt. Opið er fyrir athugasemdir undir hverri færslu. Fésbókarsíðan er hins vegar hvorki ætluð til þess að veita ráðgjöf um sjúkdóma, greiningu eða meðhöndlun, né til að komast í samband við dýralækni á vakt.

Árið 2013 fluttist eftirlit með dýravelferð frá Umhverfisstofnun til Matvælastofnunar. Áður var eingöngu eftirlit með heilsu og velferð búfénaðs og afurðagefandi dýrum hjá Matvælastofnun, en með sameiningunni færðist eftirlit með velferð allra dýra undir einn hatt. Gildistaka nýrra laga um velferð dýra árið 2014 hafði í för með sér auknar kröfur um dýravelferð, uppfærslu á regluverki og skilvirkari þvingunar- og refsiúrræði. Ábendingar um grun um vanrækslu eða illa meðferð á dýrum til Matvælastofnunar er mikilvægur liður í að uppgötva og uppræta illa meðferð á dýrum. Betur sjá augu en auga og hefur fjöldi ábendinga frá almenningi aukist til muna á undanförnum árum.

Fésbókarsíðan býður upp á að hafa samband við Matvælastofnun í gegnum ábendingakerfi stofnunarinnar. Það er gert til að tryggja eftirfylgni og sér gæðastjóri til þess að öllum ábendingum sé lokið. Það er einnig gert til að halda yfirlit yfir ábendingar, fyrirspurnir og kvartanir til Matvælastofnunar. Fjöldi ábendinga, fyrirspurna og kvartana er tekinn saman og birtur eftir málaflokkum í ársskýrslum Matvælastofnunar.

Um er að ræða aðra Fésbókarsíðu stofnunarinnar en Neytendavakt Matvælastofnunar var tekin í notkun fyrr á þessu ári. Með því að líka við síðuna og nýta ábendingakerfið getur almenningur fengið upplýsingar um viðfangsefni og störf stofnunarinnar á skjótan og skilvirkan hátt og lagt sitt af mörkum í þágu dýravelferðar. Stöndum saman vörð um velferð dýra.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?