Norræn matvælaeftirlitsráðstefna
Frétt -
18.02.2010
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
|
|
Dagana 25. - 26. febrúar
2010 verður haldin hér á landi áttunda norræna
matvælaeftirlitsráðstefnan. Matvæla-stofnun (MAST) í samvinnu við
Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna annast framkvæmd ráðstefnunnar með
aðstoð fulltrúa frá systurstofnunum hinna Norður-landanna. Þema ráðstefnunnar er: Svindl með matvæli og ráðgjöf til fyrirtækja. |
Markhópur ráðstefnunnar eru starfsmenn ríkis og sveitarfélaga sem sinna matvælaeftirliti. Starfsmönnum einkarekinna skoðunarstofa, neytendasamtaka og fyrirtækjasamtaka er einnig boðið að sækja ráðstefnuna. Ráðstefnuna sækja einnig fulltrúar frá Grænlandi og Færeyjum.
Ítarefni