Fara í efni

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark mjólkur

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur skv. reglugerð nr. 190/2011 þann 1. apríl 2012 hefur komið fram  jafnvægisverð á markaði  krónur 300 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.

Alls bárust Matvælastofnun 59 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki. 

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu = 11 
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup = 46
  • Greiðslumark sem boðið var fram = 488.756 lítrar.
  • Greiðslumark sem óskað var eftir = 1.522.805 lítrar.
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 488.756 lítrar.
  • Kauphlutfall viðskipta er 34,95 %

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. apríl 2012. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 300 kr/l.


Myndræn framsetning sýnir uppsafnað kaup- og sölumagn við ákveðið verð. Skurðpunktur  línann reynist því aðeins vera niðurstaða á uppboðinu ef ofangreint hlutfall kaup og sölumagns reynist vera jafnt og 1. Sé hlutfallið aftur á móti undir einum þá er skurðpunktur línanna ekki birtingarmynd á jafnvægisverði  né jafnvægismagni.

Niðurstaða uppboðsmarkaðarins nú er að allir seljendur með gild tilboð ná að selja boðið greiðslumark þar sem  uppsafnað magn frá kaupendum reyndist hærra en sölumagn á jafnvægisverði.  Þetta veldur því að sölu- og eftirspurnarlínur skerast ekki en viðskipti verða engu að síður.

Þeir sem lögðu inn kauptilboð og buðu verð = 300 kr/líter eða hærra fá nú keypt hlutdeild í því greiðslumarki sem til sölu kemur. 

Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri  300,-  kr/líter eða lægra selja nú greiðslumark sitt. 

Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. nóvember 2011 sýnir eftirfarandi:

  • að framboð er nú 54,2 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
  • að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 147,6 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markað.
  • að verð á greiðslumarki hefur hækkað í krónum talið um 10 kr/líter.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?