Fara í efni

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark mjólkur

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur þann 1. nóvember 2015  skv. reglugerð nr. 190/2011 með síðari breytingum, hefur komið fram  jafnvægisverð á markaði 175 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.

Alls bárust Matvælastofnun 21 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki. 

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu = 19 
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup = 1  
  • Greiðslumark sem boðið var fram = 1.306.169 lítrar.
  • Greiðslumark sem óskað var eftir = 193.000 lítrar.
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 170.109 lítrar.
  • Kauphlutfall viðskipta er 88.14 % 

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. nóvember 2015. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 175 kr./l. 

Kvótamarkaður mjólkur 02.11.15 - mynd

Myndræn framsetning sýnir uppsafnað kaup- og sölumagn við ákveðið verð. Skurðpunktur  línann reynist því aðeins vera niðurstaða á uppboðinu ef ofangreint hlutfall kaup og sölumagns reynist vera jafnt og 1. Sé hlutfallið aftur á móti undir einum þá er skurðpunktur línanna ekki birtingarmynd á jafnvægisverði  né jafnvægismagni.

Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði 175,-  kr./l. eða lægra selja nú greiðslumark sitt. 

Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. september 2015 sýnir eftirfarandi:

  • að framboð er nú 355,5 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
  • að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 20,3 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markaði.
  • að verð á greiðslumarki nú er 25 krónum lægra en það var á markaði þann 1. september 2015

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?