Fara í efni

Námskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun heldur undirbúningsnámskeið fyrir þá sem hafa sótt um aðild að gæðastýringu í sauðfjárrækt en krafist er að þátttakendur í gæðastýrði sauðfjárrækt sæki slíkt námskeið. Vakin er athygli framleiðanda sem óskar eftir að taka upp gæðastýrða sauðfjárframleiðslu á búi sínu að umsóknum skal skila eigi síðar en 20. nóvember.

Staður og tími

  • Akureyri þann 30. nóvember í Búgarði að Óseyri 2 kl. 10:00 – 17:00

Tilkynna þarf þátttöku eigi síðar en 15. nóvember n.k. Tekið er við tilkynningum um þátttöku í síma 530-4800 hjá Matvælastofnun eða með tölvupóstum á netfangið mast@mast.is

Ekki er um sérstakt námskeiðsgjald að ræða en þátttakendur greiða sjálfir fyrir veitingar.

Efni

  • Farið yfir lagalegan grundvöll gæðastýringar og stjórnsýslu tengdri gæðastýrðri sauðfjárrækt
  • Farið er ítarlega yfir reglugerð 1160/2013 með síðari breytingum um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu þar sem áhersla er lögð á að skýra alla liði reglugerðarinnar fyrir þátttakendum
  • Fjallað um landnýtingu og landbótaáætlanir
  • Farið yfir reglugerð 916/2012 um merkingar búfjár
  • Farið yfir reglugerð 1066/2014 um velferð sauðfjár og geitfjár
  • Fjallað um skýrsluhald í sauðfjárrækt, uppbygginu þess og grundvallaratriði sem standa þarf skil á við þátttöku í skýrsluhaldi
  • Farið yfir notkun á jord.is
  • Farið í grundvallaratriði varðandi sauðfjárbúskap og fóðrun og hriðingu sauðfjár 

Lengd námskeiðs er 6 klukkustundir og miðað er við að hámarksfjöldi á hvert námskeið sé 20 manns. Matvælastofnun áskilur sér þann rétt að fella niður námskeið ef þátttaka er ekki næg og færa staðsetningu námskeiðsins.


Getum við bætt efni síðunnar?