Fara í efni

Námskeið fyrir nýja aðila í gæðastýringu í sauðfjárrækt

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun mun halda tvö undirbúningsnámskeið fyrir þá sem hyggjast sækja um aðild að gæðastýringu í sauðfjárrækt en krafist er að þátttakendur í gæðastýrðri sauðfjárrækt hafi sótt slíkt námskeið.

Staður og tími

  • Akureyri þann 10. nóvember í Búgarði að Óseyri 2 kl. 10:00 – 17:00 
  • Stóra Ármóti þann 12. nóvember í sal BSSL kl. 10:00 – 17:00

Tilkynna þarf þátttöku eigi síðar en 5. nóvember n.k. Tekið er við tilkynningum um þátttöku í síma 530-4800 hjá Matvælastofnun eða með tölvupóstum á netfangið mast@mast.is 

Ekki er um sérstakt námskeiðsgjald að ræða en þátttakendur greiða sjálfir fyrir veitingar.

Efni

  • Farið yfir lagalegan grundvöll gæðastýringar í og stjórnsýslu tengdri gæðastýrðri sauðfjárrækt
  • Farið er ítarlega yfir reglugerð 1160/2013 með síðari breytingum um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu þar sem áhersla er lögð á að skýra alla liði reglugerðarinnar fyrir þátttakendum
  • Fjallað um landýtingu og landbótaáætlanir
  • Farið yfir reglugerð 916/2012 um merkingar búfjár
  • Farið yfir reglugerð 1066/2014 um velferð sauðfjár og geitfjár
  • Fjallað um skýrsluhald í sauðfjárrækt, uppbygginu þess og grundvallaratriði sem standa þarf skil á við þátttöku í skýrsluhaldi
  • Farið yfir notkun á jord.is
  • Farið í grundvallaratriði varðandi sauðfjárbúskap og fóðrun og hriðingu sauðfjár 

Lengd námskeiðs er 6 klukkustundir og miðað er við að hámarksfjöldi á hvert námskeið sé 20 manns. 


Getum við bætt efni síðunnar?