Fara í efni

Minnispunktar vegna eldgoss

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Öskufall


  • Forða skepnum undan öskufalli. Hýsa þær eða flytja annað ef mögulegt er.
  • Tryggja skepnum  hreint drykkjarvatn. Kanna ástand vatnsbóla og sjá til þess að yfirborðsvatn berist ekki í þau. Hafa rennandi vatn hjá skepnum á útigangi.
  • Gefa skepnum á útigangi gott og mikið fóður, tryggja þeim aðgang að saltsteinum og halda þeim frá beit eins og kostur er. Gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir að aska falli á fóðrið. 
  • Tryggja eftir föngum að aska berist ekki inn í gripahús.
  • Sama gildir um gæludýr og aðrar skepnur að mikilvægast er að forða því að þau drekki úr stöðnu vatni og halda þeim sem mest innandyra

Flóðahætta


  • Meta aðstæður og ákveða hvort skepnum sé betur borgið innanhúss eða utan.
  • Tryggja eftir því sem kostur er að skepnur á útigangi geti forðað sér undan flóði.


Slys eða sjúkdómar


  • Hafa samband við dýralækni ef skepnur slasast eða verða veikar. Reynt er að tryggja að dýralæknar komist þangað sem nauðsyn krefur.


Gosefni sem berast með vindi geta mengað gróður og vatn og borist ofan í skepnur. Öskukornin eru oddhvöss eins og örsmá glerbrot. Þau særa augu, öndunarfæri og meltingarveg. Þau geta valdið niðurgangi, tannsliti og fótsæri. Flúor loðir við yfirborð kornanna, þeim mun meiri sem askan er fínni. Því er fín aska langt frá eldstöð síst minni hætta skepnum en aska sem fellur nær.

Flúor bindur kalsíum í torleyst sambönd og stuðlar þannig að kalkskorti. Bráð eitrun getur valdið doða í ám og kúm, og klumsi í hryssum, einkum seint á meðgöngu og um burð eða köstun. Áhrif langvinnrar eitrunar er gaddur á jöxlum, sem gerir skepnunum erfitt að bíta, tyggja og jórtra, og beinmyndanir á fótleggjum, sem valda helti. Önnur eitrunarhætta, sem við má búast í tengslum við eldgos, er vegna koltvísýrings í gosgufum. Hann sest í lægðir og getur valdið köfnun.

Hættan vegna eldgoss af þessari gerð er breytileg eftir árstíð, dýrategund, aldri, magni flúors og annarra efna í öskunni og hvert askan berst. Hindra skal ef unnt er öskufall á skepnurnar og í fóður þeirra og sjá til þess að þær hafi aðgang að hreinu drykkjarvatni. Ef aska fellur á óslegið tún á heyskapartíma, er vissara að bíða með slátt þar til rignt hefur, sama gildir um beitiland. Flúorinn þynnist fljótt og eitrunarhætta dvínar, þegar rignir. Falli flúormenguð aska á hey þarf að meta magn flúors, sem gæti borist í skepnurnar og taka ákvörðun um nýtingu heysins á grundvelli þess.


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?