Fara í efni

Matvælastofnun lítur innbrot í Reykjabúið í Mosfellsbæ alvarlegum augum

Matvælastofnun áréttar að innbrot inn til bænda og/eða fyrirtækja sem halda dýr, þar sem dýr eru rekin út, verða mögulega fyrir meiðslum eða skaða vegna smitefna sem berast í húsin, eru brot á lögum um velferð dýra nr. 55/2013.

Reynslan sýnir að slík atvik eru dýrum ekki til hagsbóta. Þvert á móti hafa slíkar aðgerðir mögulega alvarlegar afleiðingar fyrir velferð þeirra, valda þar á meðal streitu, ótta, þjáningu, meiðslum og í sumum tilvikum dauða. Í kjölfar slíkra innbrota hefur þurft að aflífa dýr. Á búum eru almennt miklar smitvarnir og innbrot með þessum hætti geta borið í húsin ný smitefni sem geta haft alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar fyrir öll dýrin í húsinu. Matvælastofnun vísar í þessu samhengi til innbrots í Reykjabúið í Mosfellsbæ aðfaranótt mánudags og nýlegs innbrots á býli Stjörnugrís.

Matvælastofnun mun fylgja málunum eftir í samvinnu við dýraeigendur og kæra brot á lögum um velferð dýra sem þessum til lögreglu.


Getum við bætt efni síðunnar?