Fara í efni

Matvælastofnun kannar hreinleika íslensks nautahakks

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur tekið sýni úr íslensku hakki og framleiðsluvörum á markaði hér á landi til að kanna hreinleika kjötsins. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort hrossakjöt er að finna í vörunum án þess að það komi fram í merkingum.

Rannsóknir á matvörum í Evrópu sem sagðar eru innihalda nautakjöt á umbúðum hafa leitt í ljós að sumar þessara vara innihalda hrossakjöt að hluta eða öllu leyti. Komið hefur í ljós að vörur sem þessar hafa að einhverju marki verið fluttar til Íslands og hafa tvær vörutegundir verið innkallaðar vegna þess. Spurning vaknar hvort hið sama geti átt við um íslenskt nauthakk á markaði hér á landi og miðar rannsóknin að því að kanna hvort hrossakjöti hafi verið blandað í íslenskt nautahakk.

Árið 2010 birti Matís niðurstöður gæðakönnunar á íslensku nautahakki sem framkvæmd var fyrir Neytendasamtökin og Landssamband kúabænda. Þær sýndu að öðrum kjöttegundum var ekki blandað saman við nautahakkið og sojaprótein greindist ekki.

Matvælastofnun telur engu að síður fulla ástæðu til að kanna stöðuna að nýju í dag í ljósi niðurstaðna rannsókna á meginlandinu.

Tekin hafa verið sýni úr 15 framleiðsluvörum sem líklegast má telja að unnt sé að blanda hrossakjöti í án þess að það sé tilgreint á pakkningum. Sýnin verða rannsökuð á Keldum þar sem greint verður hvort þau innihaldi hrossakjöt. Búast má við niðurstöðum í næstu viku. Óheimilt er að villa um fyrir neytendum með röngum eða villandi merkingum á matvörum.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?