Fara í efni

Matvælastofnun hefur lokið rannsókn á veiðum Hvals 8 á fyrstu langreyð vertíðarinnar

Matvælastofnun hefur lokið rannsókn á því hvort Hvalur hf. hafi brotið gegn lögum um velferð dýra nr. 55/2013 og reglugerð um veiðar á langreyðum 895/2023 við veiðar á fyrstu langreyð vertíðarinnar sem Hvalur 8 veiddi. Langreyðin var skotin með fjórum sprengiskutlum og það tók um 31 mín fyrir dýrið að drepast.

Rannsóknin sýnir að skipverjar Hvals 8 hafi gert allt sem í þeirra valdi stóð til að aflífa langreyðina eins hratt og mögulegt var. Þó svo að dauðatíminn sé langur, enda skal ávallt stefnt að því að dýr aflífist samstundis, þá hafi skipverjar brugðist við samkvæmt verklagi. Fyrsta skotið hæfir dýrið innan æskilegs marksvæðis, sem og tvö af þremur endurskotum. Stofnunin hefur ekki gögn sem benda til þess að skotmaður hefði getað skotið endurskoti fyrr en gert var, né gripið til annarra aðgerða sem hefðu stytt eða linað þjáningar dýrsins. Því er það niðurstaða rannsóknar Matvælastofnunar að Hvalur hf. hafi ekki brotið gegn reglugerð um veiðar á langreiðum 895/2023 og lögum um velferð dýra 55/2013 og málinu lokið.


Getum við bætt efni síðunnar?