Fara í efni

Markaðssetning áburðar - Hrein efni eða sýrlingar

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Nú eru áburðarsalar á fullu við að selja vörur sínar. Þá vakna spurningar um söluaðferðir og hvernig kynna má áburðinn. Sérstök vafamál þar er hvernig efnainnihald er kynnt fyrir kaupendum.

Þar er einkum villandi á hvaða formi efnainnihald áburðarins er gefið upp, hvort það er gefið upp sem hrein efni eða sýrlingar (oxíð). Það skiptir öllu máli þegar bóndi áætlar áburðarþörf til sinnar ræktunar.

Í 6. gr. reglugerðar 630/2007 sem innleiddi áburðarreglugerð ESB kemur fram að heimilt er nota bæði hlutföll hreinnna efna og sýrlinga í kynningum og merkingum á áburði. Eina efnið sem er alltaf gefið upp sem hreint efni er köfnunarefni (N). Seljanda er skylt að greina frá hvort kynningar á efnainnihaldi áburðar miðast við hrein efni eða sýrlinga.  Hér verða gefnar þær reikniformúlur þegar hrein efni eru reiknuð frá sýrlingum:

  1. Fosfór (P) = Fosfórpentoxíð (P2O5) x 0,436
  2. Kalí (K) = Kalíoxíð (K2O) x 0,83
  3. Kalsíum (Ca) = Kalsíumoxíð (CaO) x 0.175
  4. Magnesíum (Mg) = Magnesíumoxíð (MgO) x 0,603
  5. Natríum (Na) = Natríumoxíð (Na2O) x 0,742
  6. Brennisteinn (S) = Brennisteinsþríoxíoð (SO3) x 0,400

Þannig að sé gefið upp innihald fyrir fosfórpentoxíð (P2O5) 10% er hlutfall hreins fosfórs P 4,36% í áburðinum og sé kalíoxíð (K2O) gefið upp 10% í áburðinum er hlutfall hreins kalís 8,3% í áburðinum.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?