Fara í efni

Uppfært: Málmhlutur í sælgæti

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Uppfært: Core ehf. innkallar einnig sælgætið „Sura Vattenmelon bitar80g með Best fyrir dagsetningu 05-2022 og framleiðslunúmeri L-0129 vegna aðskotahlutar úr málmi sem fannst í vörunni. Varan er seld í Bónus, Hagkaup, Fjarðarkaup og Heimkaup.

Ábending barst Matvælastofnun í kjölfar birtingar fyrri fréttatilkynningar. Stofnunin upplýsti heilbrigðiseftirlitið og hefur fyrirtækið hafið innköllun á sælgætinu.

Sura Vattenmelon bitar


 

Matvælastofnun varar við neyslu á sænsku sælgæti „S-märke surt skum“, sem heildverslun Core ehf. flytur inn, vegna aðskotarhlutar úr málmi sem fannst í vörunni. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs.

Matvælastofnun fékk upplýsingarnar í gegnum evrópska viðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli á markaði og gerði heilbrigðiseftirlitinu viðvart.

Einungis er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu/best fyrir dagsetningu:

  • Vörumerki: Candy people
  • Vöruheiti: S-Märke Surt skum 70 g
  • Innflytjandi: Core ehf.
  • Best fyrir dagsetning: 14-08-2022 M4
  • Dreifing: Bónus, Hagkaup, Krónan, Iceland, Krambúðir, Kvikk, 10-11, Extra24, Fjarðarkaup, N1, Olís, Melabúðin og Heimkaup

innkallað nammi

Neytendur sem hafa keypt tilgreinda vöru eru beðnir um að skila henni í verslun eða á skrifstofu Core Heildsölu að Víkurhvarfi 1, 203 Kópavogi.

Ítarefni

Uppfært 11.11.20 kl. 15:05
Uppfært 04.11.20 kl. 14:20


Getum við bætt efni síðunnar?