Listeria spp. og tilkynningaskylda matvælafyrirtækja
Matvælastofnun vill árétta tilkynningaskyldu matvælafyrirtækja gagnvart sjúkdómsvaldandi örverum í matvælum og/eða í umhverfi matvælaframleiðslu. Listeria monocytogenes er sjúkdómsvaldandi baktería sem getur fyrirfundist í matvælum og/eða umhverfi. Fyrirtæki sem framleiða tiltekin matvæli í áhættuflokki m.t.t. Listeria monocytogenes er skylt að prófa reglulega fyrir bakteríunni. Það eru til margar tegundir af Listeria spp. en einungis Listeria monocytogenes er sjúkdómsvaldandi fyrir fólk.
Matvælastofnun lítur svo á að ef Listeria spp. greinast í matvælum og/eða í umhverfi matvælaframleiðslu sé rökstuddur grunur að sjúkdómsvaldandi baktería sé mögulega til staðar þar til útilokað hefur verið, með tegundagreiningu, að um Listeria monocytogenes sé að ræða. Því gildir fyrrnefnd tilkynningaskylda, nema að það fari fram tegundargreining sem útilokar Listeria monocytogenes.
Í stuttu máli:
- Ef í sýni af matvælum eða úr umhverfi matvælaframleiðslu greinist Listeria monocytogenes ber matvælafyrirtækjum að tilkynna niðurstöðuna til Matvælastofnunar
- Ef í sýni af matvælum eða úr umhverfi matvælaframleiðslu greinast Listeria spp og frekari tegundargreining er ekki gerð, ber að tilkynna niðurstöðuna til Matvælastofnunar.
Krafa um tilkynningaskyldu matvælafyrirtækja er að finna í 24. gr. matvælalaga, sjá nánar hér:
1. Skv. 4. mgr. 24. gr. matvælalaga nr. 93/1995: Heilbrigðisnefnd, aðilar sem hafa faggildingu og fara með tiltekin eftirlitsverkefni og matvælafyrirtæki skulu tilkynna Matvælastofnun ef gögn sem þessir aðilar hafa undir höndum eða aðrar ástæður benda til hættu á heilsutjóni vegna neyslu matvæla. Sama tilkynningarskylda á við um þá sem starfa við rannsóknir og greiningu ef þeir greina í sýnum úr matvælum eða umhverfi matvælafyrirtækja örverur sem geta valdið sjúkdómum í mönnum sem eru tilkynningarskyldir samkvæmt ákvæðum sóttvarnalaga eða reglna settra með stoð í þeim lögum.
2. Skv. 1. mgr. 3. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997: Ráðherra ákveður með reglugerð nr. 221/2012 að fengnum tillögum sóttvarnaráðs, hvaða smitsjúkdómar eða sjúkdómar af völdum eiturefna og geislavirkra efna eru skráningarskyldir og hvaða sjúkdómar eru tilkynningarskyldir, sbr. 1. og 2. mgr. 9. gr. Af skráningarskyldum smitsjúkdómum eru þeir sjúkdómar tilkynningarskyldir sem ógnað geta almannaheill. Einnig skal tilkynna um sérhverja þá atburði sem geta haft alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar á meðal þjóða heims, þ.m.t. atburði sem eru af óþekktri orsök eða uppruna.
3. Skv. 5. gr. reglugerðar nr. 221/2012 um skýrslugerð vegna sóttvarna er „listeríusýking“ á lista yfir tilkynningaskylda sjúkdóma og sjúkdómsvalda þeirra.