Fara í efni

Listería í taðreyktum silungi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Listería (Listeria monocytogenes) hefur greinst í taðreyktum silungi frá Geitey ehf. Sýkillinn greindist í innra eftirliti fyrirtækisins og hefur varan verið innkölluð af markaði í samráði við Matvælastofnun. Innköllunin nær eingöngu til pakkninga með pökkunardagsetningu 07.11.16, 08.11.16 og 09.11.16.

  • Vöruheiti: Taðreyktur silungur 
  • Framleiðandi: Geitey ehf, Mývatnssveit
  • Nettóþyngd: Breytileg
  • Pökkunardagsetning: 07.11.16, 08.11.16 og 09.11.16 
  • Geymsluskilyrði: Kælivara
  • Dreifing: Krónan, Hagkaup, Nóatún, Fjarðarkaup, verslun Iceland, Samkaup, Krambúð Húsavíkur, Skagfirðingarbúð, Hlíðarkaup og Nettó

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila vörunni til fyrirtækisins eða í viðkomandi verslun. 

Listeria monocytogenes getur orsakað sjúkdóm bæði hjá mönnum og dýrum og kallast þessi sjúkdómur listeriosis. Einkenni sjúkdómsins eru mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur. Alvarlegri einkenni eru heilahimnubólga í ungbörnum, blóðeitrun og getur sjúkdómurinn einnig valdið fósturláti. Í einstaka tilfellum getur bakterían valdið dauða, þá er yfirleitt um að ræða einstaklinga sem eru með skert ónæmiskerfi. 

Í flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríumenguðum matvælum ekki sjúkdómi. Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Hópsýkingar af völdum listeríu eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?