Fara í efni

Laust starf eftirlitsmanns með velferð og aðbúnaði dýra

Viltu taka þátt í að tryggja velferð dýra? 

 

Matvælastofnun leitar að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi í starf á sviði velferðar og aðbúnaðar dýra í Suðvesturumdæmi. Starfið heyrir undir héraðsdýralækni umdæmisins sem er með starfsstöð við Laugaveg 166.

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Matvælastofnun er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem gætir hagsmuna neytenda og málleysingja. Megináhersla er lögð á starfsánægju og samskipti ásamt því að vera öflugt og lifandi þekkingarsamfélag.

Við stöndum vörð um heilsu manna, dýra og plantna og aukum þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Gildi Matvælastofnunar eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.

Helstu hlutverk teymisins eru eftirfarandi:

  • Eftirlit með gæludýrum
  • Eftirlit með búfjárhaldi
  • Móttaka og úrvinnsla ábendinga um illa meðferð dýra

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun í búvísindum, dýralækningum eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af búfjárhaldi og umgengni við búfé af öllum tegundum æskileg
  • Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg
  • Reynsla af opinberu eftirliti æskileg
  • Nákvæmni, frumkvæði, fagleg vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ellen Ruth Ingimundardóttir, héraðsdýralæknir (ellen.ingimundardottir@mast.is) eða í síma 530 4800.

Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur.

Sótt er um starfið á Starfatorgi.

Umsóknarfrestur er til og með 14. júlí 2025. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í sex mánuði nema umsækjandi ákveði annað. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.


Getum við bætt efni síðunnar?