Fara í efni

Landskönnun á mataræði íslendinga 2010 - 2011

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Niðurstöður landskönnunar á mataræði landsmanna 2010–2011 voru birtar í dag. Megin niðurstaða könnunarinnar er sú að mataræði Íslendinga hefur þokast nær ráðleggingum um heilsusamlegt mataræði frá árinu 2002. 

Má þar einkum nefna að neysla á harðri fitu (þ.e. mettaðri fitu og trans-fitusýrum) og viðbættum sykri hefur heldur minnkað, meira er borðað af grænmeti, ávöxtum og grófu brauði og fleiri taka lýsi. Enn er þó langt í land með að þorri þjóðarinnar fylgi ráðleggingum um a.m.k. 400 grömm af ávöxtum og grænmeti daglega eða daglega neyslu grófra brauða og D-vítamíns/lýsis.

  
Að könnuninni stóðu Embætti landlæknis, Matvælastofnun og Rannsóknastofa í næringarfræði við Háskóla Íslands og Landspítala háskólasjúkrahús og náði hún til fólks á aldrinum 18–80 ára. Hliðstæð rannsókn fór síðast fram árið 2002. 

Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar fjölmiðlum á fundi í húsakynnum Embættis landlæknis fyrr í dag en síðdegis verður opinber kynning haldin í Norræna húsinu. Kynningin í Norræna húsinu er öllum opinn og ekki þarf að skrá sig. 

Í dag kom jafnframt út skýrsla um könnunina, „Hvað borða Íslendingar? Könnun á mataræði Íslendinga 2010–2011. Helstu niðurstöður“. Höfundar hennar eru þær Hólmfríður Þorgeirsdóttir, Elva Gísladóttir og Bryndís Elfa Gunnarsdóttir hjá Embætti landlæknis, Jónína Stefánsdóttir hjá Matvælastofnun, Hrund Valgeirsdóttir, Inga Þórsdóttir, Ingibjörg Gunnarsdóttir og Laufey Steingrímsdóttir frá Rannsóknastofu í næringarfræði og Landspítala-háskólasjúkrahús 

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?