Fara í efni

Lambalát á bæ í Dalvíkurbyggð

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Lambalát af völdum kampýlóbakterbakteríu hefur greinst á Brimnesi í Dalvíkurbyggð og margar ær látið. Sýkist ærnar af þessari bakteríu eru miklar líkur á lambaláti, sem þá kemur fram síðustu tvo mánuði meðgöngu, en einnig er algengt að ærnar hafi tal, en beri þá dauðum eða mjög veikburða lömbum. Ekki hefur enn tekist að tegundagreina bakteríuna, en unnið er áfram að því. Smitleiðir geta verið margvíslegar s.s. eins og að fuglar mengi fóður eða smit berist á milli gripa á húsi.

Þar sem þessi sýking kemur upp er mikil hætta á að margar ær láti og því mikilvægt að fjarlægja strax hildar og fóstur og hreinsa undan ánum og sótthreinsa staðinn. Ærnar á síðan að einangra frá öðru fé og þannig reyna að draga úr smitálagi.  Smitgát milli bæja er nú sem endranær mikilvæg og þurfa menn að gæta þess að fara ekki í óhreinum húsafötum eða stígvélum inn í hús hjá öðrum, en best fer á því að bændur hafi tiltækan eigin vinnu- og skófatnað fyrir sína þjónustuaðila.

Lyf ná ekki að stöðva þetta og því mikilvægt að viðhafa gott hreinlæti s.s. góðan handþvott og verja og ganga vel um fóður. Kampýlóbakter er algeng baktería og í dýraríkinu er hana einna helst að finna í fiðurfé. Lambalát af völdum kampýlóbakterbakteríu er fremur fátítt hérlendis. 


Getum við bætt efni síðunnar?