Fara í efni

Lærdómurinn af faraldri smitandi hósta í hrossum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Faraldur smitandi hósta gekk yfir hrossastofninn árið 2010. Þrátt fyrir að um tiltölulega vægan sjúkdóm væri að ræða hafði hann lamandi áhrif á hestamennskuna í landinu og alla atvinnustarfsemi henni tengdri. Matvælastofnun, Tilraunastöðin á Keldum og Dýralæknafélag Íslands boða til málþings um faraldur streptokokkasýkinga í íslenskum hrossum föstudaginn 17. apríl kl. 10:30 – 17:00 í sal Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu 8 í Reykjavík.

Langan tíma tók að greina orsök sjúkdómsins, m.a. vegna þess að þekkingu skorti á stofnabreytileika hinnar annars vel þekktu bakteríu Streptococcus zooepidemicus, sem fyrst og fremst var talin fylgja í kjölfar annarra sýkinga. Með sameindalíffræðilegum aðferðum  og tengingu þeirra við faraldsfræðileg gögn auk þess sem veirusýkingar voru útilokaðar, var sýnt fram á að nýr stofn S. zoo. auðkenndur ST209, hafði borist til landsins og valdið faraldrinum.  Stofninn reyndist ekki mjög sjúkdómsvaldandi þar sem hann er ekki með svokölluð „superantigen“, en ríkulega búinn hæfileikum til að klístra sig við slímhúð (pilus) og valda langvarandi hósta. Kom það heim og saman við sjúkdómsmyndina.

Margan lærdóm má draga af faraldri smitandi hósta árið 2010 en til að svo megi verða þarf að kynna ítarlega þær aðferðir sem leiddu til niðurstöðu um orsakir sjúkdómsins.  

Mikilvægast er að við gerum okkur grein fyrir að margir fleiri stofnar bakteríunnar – og mun meira sjúkdómsvaldandi – gætu borist með sama hætti til landsins. Ber þar einkum að líta til Streptococcus equi sem er sérhæfður sjúkdómsvaldur hjá hrossum og veldur kverkeitlabólgu. Sértæk viðbragðsáætlun vegna kverkeitlabólgu verður kynnt á málþinginu.          

Frummælendur málþingsins gegndu lykilhlutverki við greiningu sjúkdómsins og eru leiðandi í rannsóknum á þessu sviði á heimsvísu:

  • Andrew Waller,  Centre for Preventive Medicine,  Animal Health Trust, Newmarket
  • Richard Newton, Centre for Preventive Medicine,  Animal Health Trust, Newmarket

Málþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis. Fyrirlestrar og umræður fara fram á ensku.

Hægt er að skrá sig í hádegisverð í Norræna húsinu á netfangið skraning@mast.is fyrir 14. apríl. Hádegisverðurinn kostar 3400 kr.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?