Fara í efni

Jólahátíðin og gæludýrin

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Jólahátíðin er tími gleði og samveru, en fyrir gæludýrin okkar getur þessi tími oft verið áskorun. Mikið breytt matarræði fyrir ferfætlingana okkar getur skapað þeim meiri vandamál en gleði. Hættur fyrir ferfætlinga og fjaðraða heimilismeðlimi geta líka leynst víða, t.d. jólaseríur, skreytingar með kertum og blómum, jólamatur og sælgæti á borðum. Þó að við sjáum ekki að pakki sem liggur fallega skreyttur undir jólatrénu innihaldi konfekt, þá er nokkuð víst að hundur heimilisins viti nákvæmlega hvað er að finna í pakkanum. Jafnvel gæti honum dottið í hug að næla sér í bita að eigin frumkvæði. Ekki bara innihaldið, heldur jafnvel pakkaskrautböndin sjálf geta reynst gæludýrunum okkar hættuleg.

Matur sem er varasamur fyrir gæludýrin er oft óvanalega aðgengilegur á jólum. Súkkulaði (sér í lagi dökkt súkkulaði, jafnvel í litlu magni), laukur, rúsínur, avokado og vínber eru matvæli sem m.a. geta verið hættuleg dýrunum þínum. Skörp bein, svo sem fuglabein eða lambabein, ætti að passa að hundar og kettir komist ekki í enda geta hvassir endar stungist í gegnum meltingarveginn og stundum geta bein valdið stíflu.

Á heimasíðu Matvælastofnunar má finna lista yfir matvæli sem geta reynst dýrum hættuleg. Á síðunni er t.d. hægt að finna reikniformúlu til að meta hvort magn súkkulaðis sé líklegt til að valda eitrun. Heimasíðan bendir einnig á aðrar hættur sem fylgja jólunum sem gott er að hafa í huga og best er að reyna að fyrirbyggja.

Óhjákvæmilega fylgir jólahátíðinni einnig mikil notkun á ljósum og leikföngum með rafhlöðum og þá er vert að benda á að allar rafhlöður eru einstaklega hættulegar gæludýrum, en alveg sérstaklega flögurafhlöður. Ef grunur leikur á að dýr gleypi rafhlöður er um að ræða neyðartilfelli og þá þarf tafarlaust að hafa samband við dýralækni. Erindið má ekki bíða næsta dags.

Algengt er einnig að seglar allskonar séu meira í umferð, bæði með jólaskrauti á og í loki á kössum til að loka þeim. Lífshættulegt ástand getur skapast ef fleiri en einn segull er gleyptur og er um að ræða neyðartilfelli. Þarf þá tafarlaust að hafa samband við dýralækni og erindið má ekki bíða næsta dags.

Að þessu sögðu óskar Matvælastofnun öllum dýraeigendum og dýrum þeirra gleðilegrar og öruggrar jólahátíðar!


Getum við bætt efni síðunnar?