Jól án matareitrunar
Frétt -
19.12.2011
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Mikið álag er á eldhúsum landsmanna við jólaundirbúning í desember og yfir hátíðirnar. Góðir hollustuhættir í eldhúsinu eru því afar mikilvægir svo koma megi í veg fyrir að gestir og heimilsfólk fái matarsjúkdóma með tilheyrandi óþægindum.
Sjúkdómsvaldandi bakteríur geta borist inn í eldhúsið með kjöti og jarðvegi sem fylgir grænmeti og borist þaðan í önnur matvæli í eldhúsinu eða í ísskápnum. Einnig geta þær borist í matvæli frá þeim sem meðhöndlar matvælin og frá þeim búnaði og áhöldum sem eru notuð í eldhúsinu. Það er því mikilvægt að koma í veg fyrir að:- hrátt kjöt og safi úr hráu kjöti komist í snertingu við matvæli sem eru tilbúin til neyslu með því að tryggja aðskilnað á vinnuborðinu og í ísskáp og með því að geyma mat í þéttum umbúðum / ílátum.
- óhreinindi sem geta verið á grænmeti og ávöxtum berist í tilbúin matvæli með því að þvo grænmeti og ávexti fyrir notkun.
- bakteríur og veirur berist í matvæli frá höndum með því að þvo hendur áður en hafist handa við matreiðslu og eftir snertingu við hrátt kjöt og óþvegið grænmeti.
- skurðarbretti og áhöld geti mengað matvæli með því að þvo skurðarbretti og áhöld strax eftir notkun og nota jafnvel sérstök skurðarbretti fyrir kjöt, grænmeti og tilbúin matvæli.
- koma í veg fyrir krossmengun í ísskápnum með góðu skipulagi og með því að halda honum hreinum.
- bakteríur fjölgi sér í borðtuskum, viskustykkjum og handþurrkum með því að skipta reglulega um slíka um klúta.
Landsmenn eru hvattir til að tileinka sér góða hollustuhætti í eldhúsinu svo koma megi í veg fyrir að matarsjúkdómar spilli jólagleðinni.