Fara í efni

Innlausn á greiðslumarki mjólkur 1. mars

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Á fyrsta innlausnardegi ársins 2018 fyrir greiðslumark mjólkur þann 1. mars óskuðu 7 handhafar greiðslumarks eftir að ríkið innleysti greiðslumark sitt og 93 handhafar lögðu inn kauptilboð. Innlausnarvirði greiðslumarks mjólkur er 122 krónur á lítra á árinu 2018 og annast Matvælastofnun innlausn greiðslumarks. Innlausn greiðslumarks mjólkur fer fram 1. mars, 1. maí, 1. september og 1. nóvember ár hvert.

Samkvæmt búvörusamningum, sem tóku gildi þann 1. janúar 2017, skulu framleiðendur sem teljast nýliðar eða hafa framleitt a.m.k. 10% umfram greiðslumark á árunum 2013-2015 hafa forgang að kaupum 50% þess greiðslumarks sem Matvælastofnun hefur innleyst. Sá pottur skiptist síðan jafnt á milli forgangshópanna skv. 10. gr. reglugerðar nr. 1181/2017 um stuðning við nautgriparækt og skiptist svo hlutfallslega í samræmi við þann lítrafjölda sem óskað var eftir af framleiðendum í þeim hópum. Það greiðslumark sem þá er eftir er til úthlutunar öðrum kaupendum greiðslumarks og kaupendum í forgangshópum, að frádregnu því magni sem þeir fengu úthlutað úr forgangspotti.

Á innlausnardeginum 1. mars innleysti Matvælastofnun, fyrir hönd ríksins, greiðslumark 7 framleiðenda samtals 607.189 lítra að upphæð 74.077.058 krónur. Matvælastofnun úthlutaði 151.798 lítrum úr forgangspotti 1, 10% umframframleiðslupotti, 151.798 lítrum úr forgangshópi 2, nýliðahópi, og loks 303.593 lítrum úr almennum potti. Gild tilboð um kaup á greiðslumarki voru frá 93 framleiðendum og var alls óskað eftir 9.178.367 lítrum. Í forgangi 1, framleiðendur sem höfðu framleitt 10% umfram greiðslumark á viðmiðunarárunum, voru 44 framleiðendur og í nýliðaforgangi voru 8 framleiðendur. 

Frétt uppfærð: 13.03.18 kl. 12:57


Getum við bætt efni síðunnar?