Fara í efni

Innlausn á greiðslumarki mjólkur 1. maí

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Á öðrum innlausnardegi ársins 2018 fyrir greiðslumark mjólkur þann 1. maí var greiðslumark 23 búa innleyst og 110 handhafar lögðu inn kauptilboð. Innlausnarvirði greiðslumarks mjólkur er 122 krónur á lítra á árinu 2018 og annast Matvælastofnun innlausn greiðslumarks. Innlausn greiðslumarks mjólkur fer fram 1. mars, 1. maí, 1. september og 1. nóvember ár hvert.

Samkvæmt búvörusamningum, sem tóku gildi þann 1. janúar 2017, skulu framleiðendur sem teljast nýliðar eða hafa framleitt a.m.k. 10% umfram greiðslumark á árunum 2013-2015 hafa forgang að kaupum 50% þess greiðslumarks sem Matvælastofnun hefur innleyst. Sá pottur skiptist síðan jafnt á milli forgangshópanna skv. 10. gr. reglugerðar nr. 1181/2017 um stuðning við nautgriparækt og skiptist svo hlutfallslega í samræmi við þann lítrafjölda sem óskað var eftir af framleiðendum í þeim hópum. Það greiðslumark sem þá er eftir er til úthlutunar öðrum kaupendum greiðslumarks og kaupendum í forgangshópum, að frádregnu því magni sem þeir fengu úthlutað úr forgangspotti.

Á innlausnardeginum 1. maí  innleysti Matvælastofnun, fyrir hönd ríksins, greiðslumark 23  framleiðenda samtals 1.044.193lítra að upphæð 127.391.546 krónur. Matvælastofnun úthlutaði 262.846 lítrum úr forgangspotti 1, 10% umframframleiðslupotti, 262.846 lítrum úr forgangshópi 2, nýliðahópi, og loks 525.692 lítrum úr almennum potti. Tilboð um kaup á greiðslumarki voru frá 110 framleiðendum og var alls óskað eftir 33.302.367 lítrum. Í forgangi 1, framleiðendur sem höfðu framleitt 10% umfram greiðslumark á viðmiðunarárunum, voru 53 framleiðendur og í nýliðaforgangi voru 16 framleiðendur. 


Getum við bætt efni síðunnar?