Fara í efni

Inflúensa í svínum í Eyjafirði staðfest

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

  
Tilraunastöð HÍ að Keldum hefur nú staðfest að sýking í svínum á svínabúinu á Hraukbæ í Eyjafirði er af völdum inflúensuveirunnar A (H1N1). Tekin voru 10 sýni og greindust þau öll jákvæð. Um leið og grunur vaknaði voru settar takmarkanir á flutning lífdýra frá búinu og allar smitvarnir hertar. Aðrir svínabændur eru beðnir að vera vel vakandi fyrir einkennum svínaflensu á sínum búum og hafa samband við héraðsdýralækni ef grunur vaknar.
 

Engin tengsl eru talin vera milli þessa tilfellis og fyrsta tilfelli svínainflúensu í svínum á Minni-Vatnsleysu.


Svínaflensa berst ekki með matvælum og fólki stafar því engin hætta af neyslu svínakjöts.


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?