Fara í efni

Hveiti ekki tilgreint í pasta

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir hveiti (glúteni) við neyslu á Nawras Gele Vermicelli pasta. Varan inniheldur ofnæmis- og óþolsvaldinn hveiti (glúten) án þess að það komi fram í innihaldslýsingu. Miðausturlandamarkaðurinn, sem flytur inn vöruna, innkallar hana í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF evrópska viðvörunarkerfið um hættuleg matvæli og fóður og gerði heilbrigðiseftirlitinu viðvart.

Allar framleiðslulotur eru innkallaðar:

  • Vörumerki: Nawras
  • Vöruheiti: Gele Vermicelli
  • Strikanúmer: Ekki tilgreint
  • Nettómagn: 400 g
  • Lotunúmer: Allar lotur
  • Framleiðsluland: Tyrkland
  • Innflytjandi: Miðausturlandamarkaðurinn ehf., Lóuhólum 2-6, 111 Reykjavík
  • Dreifing: Miðausturlandamarkaðurinn ehf.

Macarna pasta

Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna geta skilað henni í Miðausturlandamarkaðinn þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu. Fyrir frekari upplýsingar, hafið samband við Miðausturlandamarkaðinn, Lóuhólum 2-6.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?