Hlutfall trans-fitusýra í íslenskum matvörum
09.02.2010
Á árunum 2008 og 2009 voru gerðar hjá Matís ohf
fitusýrugreiningar á 51 sýni af matvörum í þeim tilgangi að uppfæra
gögn í ÍSGEM gagnagrunninum um efnainnihald matvæla. Verkefnið var
unnið í samstarfi við Lýðheilsustöð og Matvælastofnun. Áhersla var lögð
á að kanna magn trans-fitusýra í unnum matvælum og því voru tekin sýni
af borðsmjörlíki, bökunarvörum, djúpsteikingarfeiti, mat frá
skyndibitastöðum, ís, kexi, snakki og sælgæti.
|
Í næringarráðleggingum er mælt með því að fólk borði eins lítið af trans-fitusýrum úr iðnaðarhráefni og hægt er. Einnig er mælt með því að takmarka neyslu á mettuðum fitusýrum. Með þessu móti er hægt að draga úr líkum á hjartasjúkdómum. Skortur hefur verið á upplýsingum um trans-fitusýrur í matvælum á íslenskum markaði en nú hefur að nokkru leyti verið bætt úr því. Stór rannsókn var gerð á fitusýrum í öllum flokkum matvæla á íslenskum markaði árið 1995. Niðurstöðurnar nú sýna að hlutfall trans-fitusýra fyrir nær öll matvælin er lægra en áður var. |
Í öllum flokkum matvara greindust a.m.k. sum sýnanna með litlu sem engu af trans-fitusýrum og er það mikil breyting frá því sem verið hefur. Til dæmis var nær ekkert af trans-fitusýrum í þeim tegundum af kexi sem teknar voru til skoðunar. Þetta sýnir að matvælaiðnaðurinn hefur fundið leiðir til að framleiða afurðir án trans-fitusýra. Það greindist þó talsvert af trans- fitusýrum í nokkrum sýnum af smjörlíki, bökunarvörum, ís og poppkorni. Ljóst er að framleiðendur geta endurbætt þessar vörur og losað þær við trans-fitusýrur. Niðurstöðurnar eru í samræmi við það að víða erlendis hefur náðst góður árangur við að draga úr trans-fitusýrum í matvælum.
Niðurstöður fitusýrugreininganna eru teknar saman fyrir fitusýruflokka í töflu hér að neðan.
Helstu niðurstöður mælinganna voru:
- Hlutfall trans-fitusýra í þeim matvælum, sem greind voru, hafði almennt lækkað frá árinu 1995 en þá var gerð stór rannsókn á fitusýrum í íslenskum matvælum.
- Í sýnum af kexi var mjög lítið af trans-fitusýrum (undir 0,8% af fitusýrum). Í sýnum af sælgæti var lítið af trans-fitusýrum (undir 2% af fitusýrum). Í sýnum af mat frá skyndibitastöðum voru trans-fitusýrur undir 3,5% af fitusýrum.
- Í sýnum af borðsmjörlíki, bökunarvörum, jurtaís, smjörlíki og snakki voru matvörur frá sumum framleiðendum með mikið af trans-fitusýrum en í sýnum frá öðrum framleiðendum var magn þessara fitusýra óverulegt. Þetta sýnir að vel er framkvæmanlegt að framleiða þessi matvæli án trans-fitusýra.
- Merkingar á umbúðum stóðust ekki í öllum tilfellum fyrir þær vörur sem voru til skoðunar. Umbúðir fyrir eitt kexsýnið bentu til þess að trans-fitusýrur væru í kexinu þar sem tilgreind var jurtafeiti hert að hluta. Það reyndist hins vegar ekki rétt, kexið var laust við trans fitusýrur.
Rétt er að benda á að þótt transfitusýrum sé útrýmt úr ákveðnum fæðutegundum þá er ennþá sá möguleiki fyrir hendi að varan innihaldi mettaða fitu og það ef til vill í miklu magni.
Þótt magn trans-fitusýra sé almennt ekki merkt á umbúðir matvæla geta neytendur samt dregið vissar ályktanir af innihaldslýsingum. Ef jurtaolía er eina fituhráefnið má reikna með að varnan innihaldi ekki trans-fitusýrur og tekist hafi að halda mettuðum fitusýrum í lágmarki. Sérstaklega ætti að huga að þessu í innihaldslýsingum fyrir brauð, kökur og kex. Hafa þarf í huga að kókosfeiti og pálmafeiti eru harðar feitmetistegundir úr jurtaríkinu og innihalda mikið af mettuðum fitusýrum. Ef fita hert að hluta (partially hydrogenated) kemur fyrir í innihaldslýsingu má gera ráð fyrir trans-fitusýrum. Hert fita er hins vegar ekki sönnun þess að trans-fitusýrur séu í vörunni en gera þarf ráð fyrir talsverðu af mettuðum fitusýrum.
Niðurstöður fitusýrugreininga á matvælum 2008 og 2009
Taflan sýnir magn (g) fitu og fitusýra í 100g.
Matvara |
Tími |
Fita |
Mettaðar |
Trans |
Ómettaðar |
fitusýrur |
fitusýrur |
fitusýrur |
|||
|
|
|
|
|
|
Borðsmjörlíki |
|||||
Borðsmjörlíki A |
Ágúst 2008 |
43,7 |
11,2 |
0,6 |
28,9 |
Borðsmjörlíki B |
Ágúst 2008 |
67,6 |
12,6 |
9,8 |
41,0 |
Borðsmjörlíki B |
Sept 2009 |
64,1 |
20,1 |
12,4 |
26,6 |
Bökunarvörur |
|||||
Heilhveitibrauð A |
Ágúst 2008 |
3,1 |
0,7 |
0,1 |
1,5 |
Hjónabandssæla A |
Ágúst 2008 |
16,9 |
7,2 |
0,1 |
8,0 |
Jólakaka A |
Ágúst 2008 |
14,7 |
4,1 |
1,4 |
7,6 |
Jólakaka B |
Júní 2009 |
12,5 |
6,5 |
0,1 |
5,0 |
Jólakaka C |
Júní 2009 |
11,3 |
3,7 |
0,1 |
6,6 |
Kleinur A |
Ágúst 2008 |
15,9 |
3,5 |
3,4 |
7,4 |
Kleinur B |
Júní 2009 |
17,9 |
5,8 |
3,6 |
6,8 |
kleinur B |
Sept 2009 |
24,0 |
6,5 |
6,1 |
8,8 |
Kleinur C |
Júní 2009 |
20,6 |
7,9 |
0,1 |
11,1 |
Kleinur D |
Júní 2009 |
19,0 |
3,5 |
2,9 |
10,7 |
Smjördeigshorn A |
Ágúst 2008 |
24,7 |
12,7 |
0,6 |
8,9 |
Snúðar A |
Ágúst 2008 |
4,6 |
1,3 |
0,1 |
2,1 |
Vínarbrauð A |
Ágúst 2008 |
23,4 |
10,0 |
0,2 |
11,0 |
Vínarbrauð A |
Júní 2009 |
22,4 |
9,8 |
0,2 |
10,7 |
Djúpsteikingarfeiti |
|||||
Feiti A |
Ágúst 2008 |
100,8 |
90,1 |
0,9 |
4,1 |
Djúpsteikt / steikt matvæli |
|||||
Franskar kartöflur A |
Ágúst 2008 |
16,1 |
2,3 |
0,4 |
11,7 |
Franskar kartöflur A |
Sept 2009 |
14,9 |
1,5 |
0,1 |
11,9 |
Franskar kartöflur C |
Ágúst 2008 |
6,3 |
2,2 |
0,1 |
3,4 |
Hamborgarar A |
Ágúst 2008 |
15,0 |
5,9 |
0,5 |
6,7 |
Kjúklingabitar A |
Ágúst 2008 |
13,8 |
3,2 |
0,1 |
8,9 |
Ís |
|||||
Jurtaís A |
Júní 2009 |
9,6 |
8,2 |
0,0 |
0,7 |
Jurtaís B |
Ágúst 2008 |
10,2 |
3,7 |
1,8 |
3,5 |
Jurtaís B |
Júní 2009 |
10,0 |
2,6 |
2,1 |
4,3 |
Jurtaís B |
Sept 2009 |
11,4 |
2,4 |
1,4 |
6,5 |
Jurtaís C |
Ágúst 2008 |
10,0 |
8,2 |
0,0 |
0,7 |
Matvara |
Tími |
Fita |
Mettaðar |
Trans |
Ómettaðar |
fitusýrur |
fitusýrur |
fitusýrur |
|||
|
|
|
|
|
|
Kex |
|||||
Kex A |
Ágúst 2008 |
20,3 |
8,7 |
0,1 |
9,1 |
Kex B |
Ágúst 2008 |
17,5 |
9,1 |
0,1 |
6,3 |
Kex C |
Ágúst 2008 |
13,0 |
6,5 |
0,0 |
4,9 |
Kex D |
Sept 2009 |
12,4 |
6,3 |
0,0 |
4,7 |
Kex E |
Ágúst 2008 |
12,4 |
6,1 |
0,0 |
4,8 |
Kex F |
Ágúst 2008 |
22,4 |
10,5 |
0,1 |
9,2 |
Smjörlíki |
|||||
Smjörlíki A |
Ágúst 2008 |
83,8 |
33,9 |
2,8 |
41,4 |
Smjörlíki B |
Ágúst 2008 |
82,3 |
33,9 |
1,7 |
41,3 |
Smjörlíki C |
Ágúst 2008 |
79,8 |
34,2 |
0,3 |
40,3 |
Smjörlíki D |
Ágúst 2008 |
82,0 |
26,6 |
12,9 |
37,1 |
Smjörlíki D |
Júní 2009 |
81,2 |
38,8 |
0,4 |
38,2 |
Smjörlíki E |
Ágúst 2008 |
83,0 |
25,9 |
18,1 |
33,6 |
Snakk |
|||||
Kartöflusnakk A |
Ágúst 2008 |
21,8 |
1,5 |
0,0 |
17,7 |
Poppkorn A |
Ágúst 2008 |
17,2 |
12,2 |
0,0 |
2,9 |
Örbylgjupoppkorn A |
Sept 2009 |
18,7 |
8,2 |
0,1 |
8,4 |
Örbylgjupoppkorn B |
Júní 2009 |
26,1 |
5,5 |
6,8 |
10,2 |
Örbylgjupoppkorn B |
Sept 2009 |
23,2 |
4,8 |
5,9 |
9,3 |
Örbylgjupoppkorn C |
Sept 2009 |
10,4 |
2,1 |
2,2 |
4,6 |
Sælgæti |
|||||
Súkkulaðivara A |
Ágúst 2008 |
25,4 |
15,6 |
0,4 |
7,3 |
Súkkulaðivara B |
Ágúst 2008 |
25,1 |
13,4 |
0,4 |
9,5 |
Súkkulaðivara C |
Sept 2009 |
29,3 |
20,6 |
0,1 |
6,6 |
|
|
|
|
|
|