Hitastigsmælingar á lönduðum afla
Undanfarið hefur Matvælastofnun sinnt eftirliti með hitastigsmælingum á lönduðum afla. Á tímabilinu frá maí til ágúst 2017 voru teknar hitastigsmælingar á lönduðum afla. Alls voru þetta 140 mælingar sem teknar voru víðs vegar um landið. Um 90% bátanna voru á strandveiðum og tæp 88% mælinga voru af strandveiðibátum.
Meðalhitastig afla var 2,8 °C, þar af voru 40% hitastigsmælinga lægri eða jafnt og 2 °C, sem er viðmið fyrir hitastig bráðnandi íss. Við samanburð á hitastigi í afla má sjá að frá júní og út júlí hækkar meðalhiti afla sem kældur er með ís sem gæti útskýrst á hækkuðum sjávarhita en meðalhiti afla sem kældur er með krapa lækkaði hins vegar á sama tímabili:
Könnun á meðalhitastigi í lönduðum afla frá maí til júlí 2017
Skipting milli íss og krapa sem kælimiðils var nokkuð jöfn eða 40% af hitamælingum af afla kældur með ís og 46% með krapa. Meðalhiti þess afla sem kældur var með krapa var 2,1 °C og meðalhiti afla sem kældur var með ís var 3,6 °C:
Meðalhitastig í lönduðum afla eftir kælimiðli
Hæsti meðalhiti mældist hjá bátum sem lönduðu í Þorlákshöfn (5,6°C) og á Siglufirði (4,2°C). Þar sem hitastig mældist hátt var algeng athugasemd eftirlitsmanna: „Enginn ís sjáanlegur um borð“ eða „mjög lítið af sjáanlegum ís í kari“. Í reglugerð 528/2012 er hnykkt á því að kæla skuli afla eins fljótt og auðið er eftir að hann kemur um borð og skipsstjórnadi skal geta sýnt fram á að hafa tekið nægan ís til veiðiferðarinnar.
Ítarefni
- Niðurstöður eftirlits Matvælastofnunar með hitastigi á lönduðum afla
- Reglugerð nr. 528/2012 um (4.) breytingu á reglugerð nr. 104/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 853/2004 um hollustuhætti sem varða matvæli úr dýraríkinu auk áorðinna breytinga
- Reglugerð nr. 104/2010 (853/2004 EB)
- Rétt aflameðferð á vef Matís
- Mikilvægi góðrar meðhöndlunar á fiski - sjávarhiti og ísþörf, á vef Matís
- Hvað þarf mikinn ís til að kæla aflann? á vef Landssambands smábátaeigenda