Fara í efni

Hertar sóttvarnir væntanlegar vegna fuglaflensu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Skæð fuglaflensa heldur áfram að breiðast út víða um heim, m.a. í Evrópu. Líkur á að hún berist hingað með farfuglum eru töluverðar. Fuglaeigendur þurfa að undirbúa sig undir hertar reglur um sóttvarnir. Afleiðingar smits á stórum alifuglabúum eru mjög alvarlegar.

Afbrigði fuglaflensuveiru með mikla meinvirkni hefur fundist í fjölmörgum villtum fuglategundum í Evrópu á síðustu mánuðum og jafnframt borist inn á alifuglabú. Þetta á m.a. við í löndum þar sem farfuglarnir okkar hafa vetursetu eða viðkomu á leið til landsins. Í ljósi þessa er talin töluverð hætta á að veiran berist hingað. Fyrstu farfuglarnir koma um og upp úr miðjum febrúar og því mikilvægt að fuglaeigendur undirbúi sig undir að verja fuglana sína eins og kostur er. Ef veiran berst inn á alifuglabú og aðra staði þar sem fuglar eru haldnir getur fjöldi fugla drepist og óhjákvæmilegt verður að aflífa alla aðra fugla á viðkomandi stöðum til að hindra útbreiðslu veirunnar. Smithætta fyrir fólk er talin mjög lítil en þrátt fyrir það er ávallt rétt að gæta smitvarna við handfjötlun á veikum og dauðum fuglum.

Matvælastofnun mun leggja til við ráðherra að fyrirskipa hertar sóttvarnir frá miðjum febrúar. Það sem að minnsta kosti verður um að ræða er:

  • að fuglaeigendur hafi fugla sína í húsum eða yfirbyggðum gerðum
  • að aðskilnaður milli alifugla og villtra fugla verði tryggður
  • að ekkert í umhverfi fuglahúsa laði að villta fugla
  • að fóður og drykkjarvatn alifugla sé ekki aðgengilegt villtum fuglum
  • að endur og gæsir séu aðskildar frá hænsnfuglum
  • að góðar smitvarnir séu við vatnsból
  • að hattar séu á öllum lóðréttum loftræstitúðum og fuglanet fyrir öðrum loftræstitúðum, opum og gluggum
  • að óviðkomandi fólki verði bannaður aðgangur
  • að notaður verði hlífðarfatnaður í fuglahúsunum sem eingöngu er notaður þar
  • að hendur séu þvegnar með sápu og vatni fyrir og eftir umhirðu fuglanna
  • að ekki séu teknir inn fuglar nema frá stöðum sem staðfest er að heilsufar sé gott

Sýningarhald og aðrar samkomur með fugla munu verða bannaðar.

Ef skæð fuglaflensa greinist í alifuglum eða öðrum fuglum í haldi mun Matvælastofnun leggja til við ráðherra að fyrirskipa aflífun á öllum fuglum á viðkomandi stað til að hindra útbreiðslu veirunnar. Á stærstu alifuglabúunum eru tugir þúsunda fugla og er því ljóst að um mjög erfiðar aðgerðir yrði að ræða og gífurlegt tjón. Það er því til mikils að vinna að tryggja smitvarnir eins og kostur er.

Fuglaeigendur sem verða varir við sjúkdómseinkenni, aukin dauðsföll eða minnkun í áti skulu tafarlaust hafa samband við eigin dýralækni eða Matvælastofnun (sérgreinadýralækni alifugla eða héraðsdýralækni).

Almenningur er beðinn um að tilkynna til Matvælastofnunar ef villtir dauðir fuglar finnast, nema augljóst sé að þeir hafi drepist af slysförum. Best er að tilkynna með því að skrá ábendingu á vef stofnunarinnar, en líka er hægt að hringja í síma 530-4800 á opnunartíma eða senda tölvupóst á netfangið mast@mast.is.

Á vef Matvælastofnunar má finna nánari upplýsingar um fuglaflensu, viðbúnaðarstig og fleira. Fyrirspurnir má senda til stofnunarinnar með því að skrá þær í ábendingar og fyrirspurnir á vefnum.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?