Veikindi komu upp í hrossum danska landsliðsins á Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð
Á nýlega afstöðnu Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð komu upp veikindi í hrossum danska landsliðsins. Sem betur fer voru öflugar smitvarnir til staðar á mótinu, til þess að draga úr hættu á útbreiðslu sjúkdóma, kæmi upp smit. Á alþjóðlegum mótum sem þessu eru hross frá hverju landi hýst aðskilin og líkamshiti allra hrossa mældur tvisvar á dag. Þetta verklag varð til þess að veikindin uppgötvuðust snemma og smitið virðist hafa haldist innan afmarkaðs hóps.
Sýnataka fór strax af stað til að útiloka alvarlega smitsjúkdómavalda eins og EHV-1 og EIV (hestainflúensu) og anaplasmósu, sem er bakteríusjúkdómur sem berst með skógarmítlum og einkennist meðal annars af háum hita. Niðurstöður rannsókna voru neikvæðar fyrir þessa sjúkdóma og einnig fyrir svokallaða hitasótt sem við þekkjum hér á landi síðan 1998 (eCov). Einnig var skoðað hvort veikindin væru tengd fóðri. Ekki vitað til þess að fleiri hross hafi veikst síðan að mótinu lauk og hættan því líklega liðin hjá.
Framkvæmdastjóri LH hefur upplýst að allir þátttakendur voru vel upplýstir um stöðu mála á mótinu og hvaða smitvarnarráðstöfunum ætti að fylgja við heimkomu.
Íslenski hrossastofninn er einangraður og hefur því takmarkað ónæmi gegn mörgum þeim smitsjúkdómum sem finnast erlendis. Auk þess eru aðstæður hér á landi þannig að þéttleiki hrossa er mikill í stórum hesthúsahverfum og hross ferðast mikið á milli landshluta og dæmis á mótum, í stóðréttum, graðhestagirðingum og hestaferðum. Reynsla af fyrri faröldrum sýna að smit breiðist hratt út hér á landi og gæti reynst mjög erfitt að hefta útbreiðslu smitsjúkdóms þegar hann er kominn til landsins á annað borð.
Ýtrustu kröfur eru í gildi hér á landi til að verjast smitsjúkdómum í dýrum. Innflutningur notaðra reiðtygja, reiðhanska, leður- og vaxfatnaðar er með öllu óheimill. Annan reiðfatnað má taka með sér hafi hann verið þveginn fyrir komu til landsins.
Matvælastofnun bendir öllum hestamönnum á að kynna sér leiðbeiningar á heimasíðu stofnunarinnar og leiðbeina erlendum gestum og ferðamönnum á sínum vegum.
Fréttin hefur verið uppfærð.