Fara í efni

Grunur um salmonellu í kjúklingi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
 

Grunur um salmonellu hefur komið í upp í ferskum kjúklingi framleiddum af Ísfugli ehf.  Fyrirtækið hefur innkallað kjúkling með rekjanleikanúmerinu (Rlnr.) 110-12-04-1-03, dagsetningar 1.3. og 2.3. Þeir sem eru með ferska kjúklinga frá fyrirtækinu með fyrrgreindu rekjanleikanúmeri geta skilað kjúklingnum í viðkomandi verslun eða beint til Ísfugls ehf., Reykjavegi 36, Mosfellsbæ.

Kjúklingurinn er hættulaus ef farið eftir leiðbeiningum um eldun. Kjötið þarf að steikja í gegn og passa að blóðvökvi smitist ekki á milli áhalda eða í meðlæti.


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?