Fara í efni

Grunur um ISA-veiru í laxeldi við Hamraborg í Berufirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Grunur hefur vaknað um tilvist ISA-veirunnar í laxeldisstöð við Hamraborg í Berufirði. Í síðustu sýnaseríu sem tekin var á sjókvíaeldissvæðinu nú í vikunni reyndist eitt sýni svara með jákvæðum hætti og verður þetta tiltekna sýni nú sent í raðgreiningu til staðfestingar. Búist er við að niðurstöður úr þeirri greiningu liggi fyrir nk. þriðjudag, 31. maí. Í dag verða tekin enn fleiri sýni úr öllum kvíum á staðsetningunni og má búast við að svör úr þeim rannsóknum liggi fyrir um miðja næstu viku. Við Hamraborg eru í eldi um 890.000 laxar í sjö sjókvíum og er megnið af fiskinum á bilinu 2-3,2 kg.

Líkt og áður hefur komið fram tilheyrir ISA-veiran fjölskyldunni Orthomyxoviridae og býr yfir flestöllum eiginleikum inflúensaveira sem við þekkjum hjá bæði fuglum og spendýrum. Þekkt eru tvö afbrigði ISA-veirunnar. Annað er góðkynja afbrigði sem aldrei veldur sjúkdómi eða tjóni (HPR0) og hitt er meinvirkt og veldur misalvarlegri sýkingu og afföllum (HPR-deleted).

Veiran er skaðlaus mönnum og berst ekki með fiskafurðum. Þess ber einnig að halda til haga að klínískur sjúkdómur hefur hvergi á heimsvísu verið staðfestur í villtum laxi í sínu náttúrulega umhverfi, jafnvel þó hin meinvirka gerð veirunnar hafi verið einangruð úr slíkum fiski.


Getum við bætt efni síðunnar?