Fara í efni

Glerbrot í síld

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á einni lotu af marineraðri síld frá fyrirtækinu Ora ehf. vegna hættu á glerbroti. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes innkallað framleiðslulotuna af markaði.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: ORA
  • Vöruheiti: Marineruð síld 590g
  • Lotunúmer/best fyrir dagsetning: L94046, BF: 16/06/2022
  • Strikamerki: 5690519000636
  • Geymsluskilyrði: Kælivara
  • Framleiðandi: Ora (Myllan-Ora ehf) kt. 660169-1729
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Dreifingaraðili: ÓJ&K-ÍSAM ehf., Blikastaðavegur 2-8, 112 Reykjavík

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila henni til næstu verslunar eða hafa samband við ÓJK-ÍSAM.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?