Fara í efni

Fyrirkomulag heilbrigðisskoðana á keppnishestum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
  Dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun hefur í samvinnu við Landsamband hestamannafélaga þróað fyrirkomulag heilbrigðisskoðana á keppnishestum sem byggir á 6. gr. laga nr.15/1994 um dýravernd: “Einungis má nota í keppni dýr sem eru heilbrigð og vel þjálfuð”. Skoðun keppnishesta á LM 2011 leiddi í ljós að særindi í munni hesta eru viðvarandi vandamál sem brýnt er að finna lausn á. Sömuleiðis þarf að gæta að heilbrigði fóta og fyrirbyggja að hestar grípi á sig í keppni.

Skýrslan hefur verið send félagasamtökum hestamennskunnar og verður nýtt í sameiginlegu átaki til að auka velferð íslenska hestsins.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?