Fara í efni

Fyrirkomulag beingreiðslna í garðyrkju 2017

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Ný reglugerð nr. 1234/2016 um stuðning við garðyrkju hefur tekið gildi. Þeir sem hafa hug á að þiggja beingreiðslur á árinu 2017 þurfa að skila inn umsókn og/eða áætlun til Matvælastofnunar fyrir 15. febrúar 2017 í þjónustugátt MAST á þar til gerðu eyðublaði þar sem fram kemur flatarmál gróðurhúsa, sem ætlað er til framleiðslu fyrir hverja tegund svo og áætluð framleiðsla af hverri tegund á árinu 2017. Framleiðendur sem hlotið hafa beingreiðslur á árinu 2016 skulu senda heildaruppgjör fyrir árið staðfest af löggiltum endurskoðanda til Matvælastofnunar fyrir 10. febrúar 2017.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?