Fara í efni

Fylgst með flutningi mjaldra

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Mjaldrarnir tveir frá Kína eru væntanlegir síðar í dag á Keflavíkurflugvöll. Matvælastofnun fylgist með velferð hvalanna og smitvörnum við flutning þeirra í ný heimkynni í Vestmannaeyjum.

Mjaldrarnir sem nefnast Litla grá og Litla hvít eiga að baki langt ferðalag frá dýragarðinum Changfeng Ocean World í Shanghai. Sérútbúnir flutningabílar munu ferja þá frá flugvellinum um Landeyjahöfn til Vestmannaeyja.

Í Eyjum verða hvalirnir settir í einangrun í sérsmíðaðri landlaug þar sem þeir munu dvelja í a.m.k. 4 vikur. Þegar aðlögun þeirra er lokið verða þeir fluttir á afgirtan griðastað í Klettsvík. Hvalirnir voru fangaðir við Rússland fyrir um 10 árum síðan og fluttir í dýragarðinn í Kína en í Vestmannaeyjum munu þeir búa við betri aðstæður sem eru mun líkari náttúrulegum heimkynnum þeirra.

Rúm þrjú ár eru síðan erindi vegna þessa innflutnings barst Matvælastofnun. Á þeim tíma hafa skilyrði til innflutnings verið mótuð m.t.t. heilbrigðis og velferðar dýranna annars vegar og smithættu hins vegar. Var þetta gert í samráði við innlenda og erlenda sérfræðinga.

Innflutningsskilyrði miða m.a. að því að lágmarka smithættu sem fylgir hvölunum og á undanförnum vikum hafa þeir undirgengist ítarlegar sýnatökur, læknisskoðanir auk meðhöndlunar gegn sníkjudýrum. Nú tekur við einangrun þar sem fylgst verður með heilsufari þeirra og atferli með það að markmiði að aðlögun þeirra að nýjum heimkynnum verði fyrst og fremst á forsendum bættrar velferðar.

Frétt uppfærð 19.06.19 kl. 12:04


Getum við bætt efni síðunnar?