Fara í efni

Fræðslufundur: Transfitusýrur

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun heldur fræðslufund um transfitusýrur þriðjudaginn 30. nóvember 2010 kl. 15:00 - 16:00. Á fundinum verður fjallað um áhrif transfitusýra á lýðheilsu, greiningu transfitusýra í íslenskum matvælum og væntanlega reglugerð um takmörkun á magni transfitusýra í matvörum hérlendis. 

Hvað er transfitusýrur, hvers vegna finnast þær í matvælum og í hvaða matvælum eru meðal þeirra spurninga sem teknar verða fyrir á fundinum. Fjallað verður um greiningar á transfitusýrum í íslenskum matvælum og þróunina í transfitusýruneyslu. Heilsufarsleg áhrif af neyslu transfitusýra verða skoðuð og fyrirhuguð reglugerð um transfitusýrur kynnt, ásamt framkvæmd eftirlits.


Gestafyrirlesarar verða Hólmfríður Þorgeirsdóttir frá Lýðheilsustöð, verkefnisstjóri nýrrar landskönnunar á mataræði sem nú stendur yfir, og Ólafur Reykdal frá Matís, sem nýverið hlaut Fjöregg MNÍ 2010 fyrir lofsvert framtak á matvæla- og næringarsviði.


Fyrirlesarar

    Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri næringar hjá Lýðheilsustöð
    Ólafur Reykdal, matvælafræðingur og verkefnastjóri hjá Matís
    Zulema Sullca Porta, sérfræðingur hjá Matvælastofnun

Hægt verður að fylgjast með fræðslufundinum í beinni útsendingu á vef MAST undir Útgáfa - Fræðslufundir. Þar verður einnig birt upptaka að fræðslufundi loknum.

Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu Matvælastofnunar í Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði MAST að norðanverðu (Grafarvogsmegin). Allir velkomnir!

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?