Fara í efni

Forritari óskast

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling til að vinna að forritun í nýjum hugbúnaðarverkefnum. Um er að ræða starf í upplýsingatækniteymi Matvælastofnunar, en teymið mótar stefnu í upplýsingatæknimálum og annast þróun hugbúnaðar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

 Helstu verkefni

  • Nýsmíði og þróun hugbúnaðar 
  • Þátttakandi í að móta og þróa nýjar lausnir
  • Þátttakandi í þróunarteymi í verkefnum Matvælastofnunar

 Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í tölvunarfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Þekking og reynsla í notkun á SQL og uppbyggingu á gagnagrunnum
  • Góð þekking á bakendaforritun
  • Þekking á GeoServer og Qgis
  • Þekking á AWS uppsetningu og rekstri EC2 véla
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Góð hæfni í teymisvinnu og mannlegum samskiptum
  • Þekking af Agile/Scrum er æskileg
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og miðlun upplýsinga

Starfsmaður mun starfa á aðalskrifstofu Matvælastofnunar á Selfossi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna. 

Nánari upplýsingar veitir María Ragna Lúðvígsdóttir á netfanginu mrl[hjá]mast.is eða í síma 530 4800. Umsóknarfrestur er til 30. ágúst nk. Sótt er um starfið á Starfatorgi og skal starfsferilskrá og kynningarbréf fylgja umsókn.


Getum við bætt efni síðunnar?