Fara í efni

Forráðamenn níu kúabúa kærðir fyrir brot á lögum um dýravernd

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

    Flestir kúabændur telja útivist nautgripa sjálfsagðan hlut en liðið sumar hefur Matvælastofnun haft afskipti af nokkrum kúabændum vegna skorts á útivist nautgripa. Nokkrir þeirra brugðust rétt við kröfum Matvælastofnunar og settu út sína nautgripi. Í tilviki níu bænda telur Matvælastofnun hinsvegar að ekki hafi verið bætt úr annmörkum á meðferð nautgripanna. Matvælastofnun hefur nú kært þessa níu einstaklinga til lögreglu.
       

Samkvæmt reglugerð um aðbúnað nautgripa skal tryggja öllum gripum, nema graðnautum eldri en sex mánaða, átta vikna útivist hið minnsta ár hvert.  Í lögum um dýravernd segir að tryggja skuli dýrum eðlilegt frelsi til hreyfingar samkvæmt viðurkenndri reynslu og þekkingu. Matvælastofnun telur að þeir sem byrgja gripi sína inni allt árið séu að brjóta reglugerð um aðbúnað nautgripa sem og ákvæði dýraverndunarlaga.


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?