Fara í efni

Flutningur líflamba milli landsvæða

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

  Þeir sem sækja um leyfi til að flytja líflömb milli varnarhólfa skulu sækja um það til MAST fyrir 1. júlí á sérstökum eyðublöðum, sem eru að finna á heimasíðu stofnunarinnar. Matvælastofnun veitir leyfi fyrir 1. ágúst eða hafnar umsókninni ef umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði reglugerðarinnar. Þeir sem hyggjast sækja um eru hvattir til að kynna sér reglugerð nr. 550/2008 um flutning líflamba milli landsvæða.
 
Samkvæmt reglugerð nr. 550/2008  um flutning líflamba milli landsvæða skulu þeir sem hyggjast selja líflömb sækja um það til Matvælastofnunar. Stofnunin hefur nú farið yfir umsóknirnar og veitt þeim umsækjendum sem uppfylla skilyrði reglugerðarinnar leyfi til að selja líflömb og/eða kið.

Nánari upplýsingar veita: Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir, Þorsteinn Ólafsson, sérgreinadýralæknir, og héraðsdýralæknar í síma 530-4800.


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?