Fara í efni

Flutningur á líflömbum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Frestur til þess að sækja um leyfi til þess að flytja líflömb milli landssvæða samkvæmt reglugerð nr. 550/2008 rennur út 1. júlí. Sótt er um leyfi til líflambaflutnings rafrænt í Þjónustugátt Matvælastofnunar.

Vakin er athygli á því að á riðusvæðum þar sem riða hefur greinst undanfarin 20 ár er bannað að flytja lifandi fé á milli hjarða. 


Getum við bætt efni síðunnar?